Hvernig má nota :
Uppáhaldið mitt er að setja 2 dropa af piparmyntu í lófann, nudda höndunum saman í 3-4 hringi og anda svo DJÚPT að mér. Nudda höndunum aftan á háls og á axlir og halda svo áfram að anda inn þar til myntan klárast af höndunum. Vá, hvað það er hressandi
– gulla
Einnig má setja einn dropa á handabakið eða í skeið og sleikja. Skilar þér mjög ferskum munni
(Piparmyntan er ein af þeim olíum sem hefur fengið vottun um að það megi neyta hennar)
Við spennuhausverk skaltu blanda tveimur dropum í smá V-6 eða aðra grunnolíu og nudda á axlir og upp hálsinn. Alveg magnað hvað hausverkurinn getur horfið hratt
Frábær í nudd á auma vöðva, best að blanda henni saman við V-6 nuddolíuna
Það er hægt að búa sér til sprey með því að setja nokkra dropa í nornahesli í spreybrúsa og fylla svo upp með vatni.
Svona sprey er mjög kælandi á heitum dögum og frískandi þegar slenið sækir á.
Piparmynta í lampann er að sjálfsögðu frábær
Einnig er gott að blanda 1-2 dropum af piparmyntu út í aðrar olíur til að efla þær, t..d út í Thieves eða Lemon
Reviews
There are no reviews yet.